Episodes
Saturday Aug 21, 2021
Fjóla Hrund Björnsdóttir, oddviti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður
Saturday Aug 21, 2021
Saturday Aug 21, 2021
Gestur Miðvarpsins í dag er Fjóla Hrund Björnsdóttir sem skipar efsta sæti Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. Fjóla Hrund hefur verið virk í stjórnmálum frá unga aldri og er með próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur tekið sæti sem varaþingmaður á Alþingi og hefur starfað sem framkvæmdastjóri þingflokks Miðflokksins síðustu ár.
Fjóla Hrund leggur áherslu á velferðarmál og þá sérstaklega málefni aldraðra og ungs fólks. Alvarlegastar séu þó þær ógöngur sem heilbrigðiskerfið er komið í undir stjórn núverandi ríkisstjórnar. Hún telur að það sérstaklega brýnt að horfa til þarfa aldraðra sem eru ólíkar og margvíslegar. Það þurfi að styrkja stofnanaumhverfi á umönnunarsviði aldraðra en eldri borgarar hafa beðið allt of lengi eftir leiðréttingu sinna kjara. Eldri borgarar eigi að njóta jafnræðis á við aðra, greiða sams konar skatta og hafa frelsi til að stjórna eigin lífi.
Fjóla Hrund segir að skerðingar Almannatrygginga séu ekki aðeins ósanngjarnar og til þess fallnar að gera fólki erfitt fyrir við að bæta líf sitt. Þá berst Fjóla Hrund fyrir bættri stöðu ungs fólks, sérstaklega þegar kemur að húsnæðismálum. Þannig verði öllum íslenskum ríkisborgurum gefinn kostur á að kaupa eign (miðað við ákveðin stærðarmörk) með hlutdeildarframlagi frá fjárfestingarsjóði fasteigna.
Það segir Fjóla Hrund gagnast ungu fólki best. Í hennar kjördæmi, Reykjavík, verði að taka samgöngumálin föstum tökum, tryggja þarf lagningu Sundabrautar og efla almenningssamgöngur. Allt þetta og meira má finna í spjalli Miðvarpsins við Fjólu Hrund.
Comments (0)
To leave or reply to comments, please download free Podbean or
No Comments
To leave or reply to comments,
please download free Podbean App.