Episodes
Wednesday Feb 17, 2021
Ólafur Ísleifsson um málefni innflytjenda
Wednesday Feb 17, 2021
Wednesday Feb 17, 2021
Ólafur Ísleifsson dró fram þá stefnubreytingu sem hefur átt sér stað á Norðurlöndum í málefnum hælisleitenda og flóttafólks. Mest áberandi er breytingin í Danmörku og Noregi. Þeim ber saman um að færa áhersluna frá hælisleitendum yfir á hjálp við fólk á heimaslóðum þess. Þetta verði gert í samvinnu við alþjóðastofnanir.
Tekið verði við kvótaflóttamönnum á grundvelli samstarfs við Sameinuðu þjóðirnar. Stefna beri að móttökustöð utan Evrópu eins og rætt hafi verið á vettvangi ESB. Miðflokkurinn tekur undir þessa stefnubreytingu á Norðurlöndum. Nýjar tölur Útlendingastofnunar um að hingað komi sexfalt fleiri hælisleitendur en til Danmerkur og Noregs sýna að móttökukerfið er í raun sprungið.
Miðflokkurinn vill nýta fé sem nú er sóað t.d. í lögfræðikostnað til að hjálpa fólki og vill auka stuðning til fólks í neyð. Fé ber að nýta þannig að það gagnist sem best og nýtist sem flestum, ekki síst konum og börnum.
Comments (0)
To leave or reply to comments, please download free Podbean or
No Comments
To leave or reply to comments,
please download free Podbean App.