Episodes

Friday Apr 23, 2021
Pólitk í vikulokin með Sigurði Má, þáttur5
Friday Apr 23, 2021
Friday Apr 23, 2021
Að þessu sinni tók Sigurður Már á móti Ólafi Ísleifssyni, þingmanni Miðflokksins.
Ekki missa af áhugaverðum þætti þar sem farið er yfir pólitíska sviðið vítt og breitt.

Friday Apr 16, 2021
Pólitík í vikulokin með Sigurði Má, þáttur 4
Friday Apr 16, 2021
Friday Apr 16, 2021
Að þessu sinni tekur Sigurður Már á móti Þorsteini Sæmundssyni, þingmanni Miðflokksins.
Áhugaverður þáttur þar sem margt ber á góma

Friday Apr 09, 2021
Pólitík í vikulokin - þáttur 3
Friday Apr 09, 2021
Friday Apr 09, 2021
Sigurður Már tekur á móti Gunnari Braga, þingmanni Miðflokksins.
Margt ber á góma, alþjóðasamstarf, ESB, Nato, EES og fleira.

Friday Apr 02, 2021
Pólitík í vikulokin - þáttur 2
Friday Apr 02, 2021
Friday Apr 02, 2021
Annar þáttur seríunnar: Pólitík í vikulokin.
Sigurður Már tekur framhaldsviðtal við Sigmund Davíð um stöðuna í pólitíkinni.
Þættirnir verða vikulega og koma inn alla föstudaga.

Friday Mar 26, 2021
Pólitík í vikulokin - Hlaðvarp fyrir fólk sem vill skýr svör!
Friday Mar 26, 2021
Friday Mar 26, 2021
Sigurður Már Jónsson ræðir við Sigmund Davíð Gunnlaugsson formann Miðflokksins

Thursday Mar 04, 2021
Una María Óskarsdóttir, varaþingmaður Miðflokksins
Thursday Mar 04, 2021
Thursday Mar 04, 2021
Bætt uppeldi, leið til forvarna og lýðheilsu.
Sér umræða fór fram á alþingi að ósk Unu Maríu.
Flutningsræðu hennar má hlusta á hér

Thursday Feb 25, 2021
Birgir Þórarinsson ræðir kjarasamningsbrot á vinnumarkaði
Thursday Feb 25, 2021
Thursday Feb 25, 2021
Sporna þarf við kjarasamningsbrotum á vinnumarkaði, launaþjófnaður á að vera refsiverður

Wednesday Feb 17, 2021
Sigmundur Davíð í umræðum um málefni innflytjenda
Wednesday Feb 17, 2021
Wednesday Feb 17, 2021
“Það sem blasir við er gríðarlega stórt viðfangsefni og þess vegna verðum við að líta til staðreyndanna og byggja lausnirnar á þeim. Til þess að það fjármagn sem við höfum til ráðstöfunar og við eigum að mínu mati að auka verulegan stuðning við fólk í neyð til þess að það fjármagn nýtist sem best og nýtist þeim sem að þurfa mest á hjálpinni að halda
En með því fyrirkomulagi sem að hér er lagt til er verið að gera okkur erfiðara fyrir að aðstoða fólk, það er verið í rauninni að vega að þeim sem að fyrir vikið munu ekki fá þjónustu og ýta undir að þeir sem eiga síður rétt á þjónustunni sæki í hana. Þetta er staðreynd sem blasir við í öðrum löndum og hefur gert lengi, önnur lönd hafa lært af reynslunni og eru nú að gera ráðstafanir sem ganga þvert á það sem íslensk stjórnvöld leggja hér til. Önnur lönd með sínum aðferðum eins og danir og danskir jafnaðarmenn með sinni stefnu munu gera miklu meira gagn fyrir þá sem þurfa mest á hjálpinni að halda heldur en íslensk stjórnvöld með þeirri sýndarmennsku, ófjármögnuðu sýndarmennsku sem birtist í þessu frumvarpi.
Því miður er hættan sú að jafnvel þó að áhrifin af þessu komi fljótt í ljós, muni líða á löngu áður en að Íslendingar þá grípa til ráðstafana og læri af reynslunni það sýnir reynsla annarra, því getum við ekki reynt að læra af henni?”

Wednesday Feb 17, 2021
Bergþór Ólason um málefni innflytjenda
Wednesday Feb 17, 2021
Wednesday Feb 17, 2021
Við eigum að taka vel á móti þeim sem við tökum á móti, en við eigum ekki að færast meira í fang en við ráðum við.” “Hér hafa stuðningsmenn málsins haldið því fram að ekkert sé að breytast verði þetta mál samþykkt. Þá verður ráðherra að útskýra með hvaða hætti mál hafa þróast þannig á undanförnum árum að hælisleitendur njóti sömu réttinda og kvótaflóttamenn, það hefur þá gerst í kyrrþey.
“Stuðningsmenn málsins virðast ekki átta sig á afleiddum áhrifum þess, áhyggjur okkar þingmanna Miðflokksins snúa ekki að kostnaðarmati fyrir þá tvo starfsmenn sem ætlunin er að ráða til starfa hjá Fjölmenningarsetri, heldur af þeim afleidda kostnaði sem hljótast mun af því fyrirkomulagi sem hér er mælt fyrir.”

Wednesday Feb 17, 2021
Birgir Þórarinsson um málefni innflytjenda
Wednesday Feb 17, 2021
Wednesday Feb 17, 2021
“Ég held því miður herra forseti að menn hafi bara ekki hugsað þetta frumvarp til enda og verði að gera grein fyrir þessum kostnaði sem að hér um ræðir, þetta mun þýða það að skilaboðin munu berast um góða þjónustu hér og það mun þýða aukinn fjölda umsókna það er alveg klárt og það þýðir þá meiri kostnað og honum þarf að mæta með einhverjum hætti og það er rétt að stjórnvöld geri grein fyrir því hvernig þau ætla að mæta þeim kostnaði.”

